Valdís í Þýskalandi

Hér ætla ég að reyna að vera dugleg að blogga aðeins hvað ég er að brasa í Þýskalandi

10.02.2010 11:15:14 / hestafrík

Klósettsetur og snjór...

... og meiri snjór, það byrjaði að snjóa hér í gær og það snjóar enn, og það sem er ennþá skemmtilegra þá var ísingin ekki farin áður en það byrjaði að snjóa aftur þannig að við fáum hér púðursnjó ofan á hálkuna... glæsilegt... ... við hentum hestunum út á tún til að hlaupa áðan, það er nóg hreyfing fyrir þá í dag :p
En ég held að það eigi að verða hlýrra eftir svona tvær vikur, þá á að fara uppí 11 gráður í plús... finally...

En já, talandi um klósettsetur, þá erum við Jón búin að fara aðeins að skoða svona Húsasmiðjur hérna á svæðinu og þar er margt merkilegt, t.d. þá er alltaf heill veggur af alls konar klósettsetum, gulum, grænum, bláum, með brosköllum á, með steinamunstri, með fyndnum setningum o.s.fr. :haha: ætla að láta fylgja hér með nokkrar myndir af þessum ósköpum ;)... eða ekki, netið hérna er svo hægt að það opnast ekki dæmið til að setja inn myndir akkurat núna... en ég mæli eindregið með því að þið tjekkið á þessari síðu og flettið aðeins í gegnum klósettseturnar þarna :p  

http://www.shopzilla.de/8B--Badaccessoires_-_cat_id--100000996__keyword--toilettensitze

Enjoy! :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 13:25:59 / hestafrík

Týndir hundar og ekkert hægt að ríða út...

...Ekki af því hundarnir hafi verið týndir, nei, það er bara svo ógeðslegt úti, það er slabb eftir hádegi og svo frystir á næturnar :s Magnað... en hér er hlaupabretti fyrir hestana inní hlöðu þannig þeir hafa eitthvað að gera, en ekkert hlaupabretti fyrir mig þannig að mér er kalt... svo er þessi líka fíni hringvöllur hér en hann er alveg ómögulegur þannig hestarnir labba bara 3,2 km á dag á hlaupabrettinu þessa dagana, og horið frýs í nös á mér á meðan...

En talandi um týnda hunda... eins og þið kannski hafið heyrt frá mér þá búa hér 3 stóru danar, og á föstudagsmorgun voru tveir af þeim horfnir, bara púff! En svo kom í ljós að þeir ákváðu að taka sér skemmtiskokk yfir í næstu sýslu :$ Og komu heim í gær, og nú er húsið aftur fullt af hundum... þetta var nú ágætlega þægilegt meðan það var bara einn stóri Dani og einn lítill Pug :p

Og svo að búðarferðum ;)
Djöfull er erfitt að versla hérna! Það er auðvitað allt á þýsku, og við Jón erum ekkert góð í þýsku sko :$ Ætluðum að hafa þægilegt kvöld og gera kjúklinga burrito en kjúklingur reyndist eitthvað skrítinn, svolítið seigur og ekki girnilegur, held þetta hafi ekki verið kjúklingur :s Þannig kvöldmaturinn það kvöldið var ristað brauð með osti og kinder nammi í eftirrétt, en það er til svo mikið af alls konar nammi frá kinder hérna, ekki bara KinderEgg eins og á Íslandi :haha:
Svo ákváðum við að skreppa í fatabúð, svona, sjá hvað föt kosta hérna og svoleiðis, hvort það væri eitthvað spennandi... en fatabúðin reyndist svo vera gæludýrabúð og útilegudótsbúð... ekki mjög spennandi föt þar :$
Ég skal skrifa sér blogg þegar við finnum actual fatabúð :p

En nú fer Jarl að verða búinn á hlaupabrettinu og ég þarf að fara að toga Stóra Daninn af litlu Pug tíkinni... Gæti endað illa, þau eru ekki alveg af sömu stærðargráðu :phttp://www.myraland.de/bilder/Mimmi_Twiggy_1.JPG
Þangað til seinna!

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.01.2010 13:48:56 / hestafrík

Þegar ég vaknaði í morgun...

... var ekki nema bara MÍNUS 18 gráður úti...8|

brrrsssst... ég kem frá Íslandi og allt það en nú var tánum á mér nóg boðið og fóru í verkfall, ég fann ekki fyrir þeim frá því klukkan 8 fram að hádegi, en þá var komið uppí -6 gráður og sólin aðeins farin að hita upp...
En áður en sólin hitaði upp svæðið þá voru meira að segja hárin á hestunum frosin, svona án djóks... Og þegar þeir voru búnir að hlaupa nokkra hringi í hringgerðinu þá var andardrátturinn  þeirra frosinn á nefhárunum, auk slefsins sem fraus um leið og það kom úr kjaftinum á þeim...
En sem betur fer þá erum við frekar laus við vind hér þannig það er ekki vindkæling eins og á því ylhýra...

En ég er nú bara búin að vinna í dag, og bíð bara eftir Jóni og að geta gefið hrossunum kvöldmatinn og svo verður það næs kvöldstund :haha:

Nennekkað skrifa meir í bili... heyrumst fljótt! ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2010 11:16:28 / hestafrík

Búin að vera í Þýskalandi í 11 daga...

... og þetta er bara alveg ágætt, fínt veður þó svo að fólkinu hér sé alveg ótrúlega mikið kalt og finnst bara ekki hægt að ríða út í svona miklum kulda... það hefur mest farið niður í -3°C og það er enginn vindur... ég kalla það ekki mikið kalt :p

En já, ég ætlaði að hripa hér niður nokkur orð um hvað er að gerast hjá mér í Þýskalandi, ákvað að nota bara þessa gömlu bloggsíðu, synd að láta þetta standa ónotað :p En margt hefur breyst, vá, ég ætlaði ekki að skilja hvernig þetta system hérna virkar, þetta er eins og þýska fyrir mér, ég skil sumt en annað er eins og kínverska :$

En ég allavega byrjaði aðeins að ríða út daginn eftir að við komum hingað og svo hef ég verið með svona 8-12 hesta á dag síðan þá, í þessari viku hefur reyndar verið mjög slæmt færi til að ríða út og vera á brautinni sem er hér þannig að þessi vika hefur aðallega farið í að lónsera hestana, gaman, gaman, fyrir þá sem ekki vita þá fer það þannig fram að maður stendur í miðjum hring og lætur hestinn hlaupa hring eftir hring í svona 20 mínútur 8| magnað alveg...

Ooog svo ég haldi áfram að hoppa frá einu í annað, þá var ég að lesa gömlu bloggin mín hérna á síðunni, og vá hvað þetta er fyndið... en það verður ábyggilega alveg jafn fyndið að lesa það sem ég er að skrifa núna eftir 3 ár :lol:

En ég bið að heilsa heim og vona að veðrið fari að batna hjá ykkur ;) Það allavega á að byrja að vora hér eftir svona 3-4 vikur held ég :d

Valdís

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 14:23:18 / hestafrík

Ég fer á bak í kvöld!

Já... það skal sko riðið út í kvöld... bara á hestum, því miður :P

Um leið og ég kem heim með rútunni þá ætla ég heim, borða mikið,mikið þótt að ég verði ekki svöng og vera svo úti í hesthúsi langt fram á rauðanótt.... OK kannski ekki en allavega eitthvað langt fram á kvöld :$

Ég bið og vona þá eftir góðu veðri.... Góði VeðurGuð, viltu hafa gott veður í kvöld?

Þín elskulega...

 

Og þið hin... munið eftir gestabókinni, ég vil geta þakkað fólkinu sem er að koma og lesa þetta, ég er alveg að fá nokkrar heimsóknir á dag sko og vil alveg vita hver þið eruð og hvað þið eruð að gera hér.... ;)

Adios!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 15:16:37 / hestafrík

buhuhuuuuuu

Já ég er ekki búin að fara á hestbak síðan á mkiðvikudag....

Ég var sko að vinna fimmtudag og fór svo beint í bæinn eftir skóla í gær og flaug á Egilstaði og verð hér þangað til annað kvöld og ég kemst ekki á hestbak fyrr en á þriðjudag því ég er að vinna á mánudag...

En allavega... talvan er að verða batteríslaus... en endilega kíkjið á b.c.is/helgaogvaldis   þar erum við Helga að reyna eitthvað að blogga...

 

Sjáumt seinna

Adios!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 17:48:44 / hestafrík

Dagurinn í gær!

Já vá.... ég hreyfði 6 hesta í gær, ég er svo obbslega dugleg :P

Fyrst var það Faxi: Mig langar svolítið að breyta honum aðeins og fá hann aðeins meira "pakkaðann" og svoleiðis, gera hann að íþróttakeppnis fimmgangs gæðingi :P Svo ég ákvað að lónsera hann aðeins og setti á hann lónseringargjörðina mína með ólunum fram í mélin á beislinu... Hann var nú ekki alveg viss hvað hann átti að gera fyrst en svo kom þetta allt saman en hann var ekki alveg á því að slappa af og gefa eftir svo að hann strekkti bara á teygjunni og var upp með hausinn og ég minnkaði ólina svolítið og svo eftir langan tíma þá loksins þá gaf hann eftir og þá gat ég hætt eftir smátíma...

Svo var það Dimma: Hún var nú bara járnuð í fyrradag svo að ég ákvað að lónsera hana líka bara aðeins... hún er líka mikið betri í lónseringu en í reið, allavega svona fyrst... hún var nú með einhver svaka læti fyrst, að blása eitthvað svaka út um nefið... en ég lét hana stökkva soldið og þá hætti hún því... Hún var fljót að slaka á og gefa eftir,enda kann hún þetta vel...

Svo fór ég á bak á Gáska: Hann var járnaður í fyrradag eins og Dimma... hann var alveg æði... reyndi reyndar að snúa við fyrst en var svo bara góður og tölti eins og engill... við fórum bara stutt þannig að það er ekki mikið að segja...

Svo fór ég á Blesa: Hann var járnaður um daginn og pabbi var búinn að fara á bak honum einu sinni og auðvitað var hann þá rosa stífur eftir pabba... en ég byrjaði bara á að liðka hann til og feta og þá slakaði hann á og við fórum á hægu tölti niður í Miðkrika...

Svo var það Skvísa: Ég ætlaði að lónsera hana en ólin á gjörðinni slitnaði svo það var úr sögunni... þannig að ég fór á bak og hún var bara ágæt... tölti alveg vel og var ekkert og körg... eins og Gáski og Dimma var hún járnuð í fyrradag svo ég fór heldur ekkert langt á henni heldur...

 

En vá ég skrifa um námskeiðið í gærkveldi í kvöld bara... ég er að fara að vinna...

Adios!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 22:36:43 / hestafrík

Meira jibbíjei!!!

Já, nú er pabbi bara búinn að járna alla hestana! :haha: Nú er hægt að fara mikið, mikið á hestbak... það er bara verst hvað maður er alltaf lengi í skólanum... ands**** skóli :evil: en ég kem allavega snemma heim á morgun svo að ég get farið mikið, mikið á hestbak 8) En ég hef nú ekki meira að segja í bili... langaði bara að deila þessu með ykkur...

En já meðan ég man... Barcelona vann Liverpool!!! á Anfield meira að segja!!! En Liverpool hafði unnið fyrri leikinn betur svo að þeir fara áfram :S ég var nú frekar að vona að Barca færi áfram :|

En allavega...

Adios!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 15:44:42 / hestafrík

Jibbí jeij!!

Ég var bara í rólegheitum heima eftir vinnu í gærkveldi að horfa á imbakassann þegar ég heyri þessu þvílíku læti á tröppunum fyrir utan gluggann hjá mér, eins og einhver væri að stappa fast niður og ég hugsaði bara : vá pabbi, hvað í ósköpunum ertu að gera?... svo var bankað á gluggan og ég dró frá og blasti ekki við mér hann Blesi minn!!! vá hvað ég var glöð!! Það var löngu kominn tími á það að járna hann og pabbi hefur verið að bíða eftir að við getum farið saman að járna hann en svo járnaði hann Blesa bara sjálfur til að koma mér á óvart :D Þannig að það verður farið feitt á bak í dag áður en fólkið mætir til að horfa á Liverpool - Barcelona.......

Go Barcelona!!!

Ein mynd af Blesa í lokin

 

Adios!!

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 22:41:09 / hestafrík

Skemmtileg úrtaka!

Já ég var alveg búin að steingleyma að blogga um úrtökuna, sem var bara órtúlega skemmtileg!

Ég var nú auðvitað í síðustu greininni svo að ég gat horft á fjórgang og tölt og þar voru Arna og Ásdís að keppa, Arna var nú að keppa í öllu en Ásdís bara í fjórgangi...

Þær stóðu sig með ágætum og var gaman að horfa en það er nú aðallega ég sem ég ætlaði að tala um sko :P

Faxi var æði, í upphituninni tölti hann eins og engill og ég hefði kannski átt að fara í fimmganginn frekar en skeiðið eða kannski bæði bara :P

Þegar kom að sprettunum sjálfum var Faxi æði, ég lagði á skeið eins og sannu snillingur og Faxi lá alla leið báða sprettina! Heldur betur! En hans veikleiki í þessu er að hann fer ekkert voða hratt þannig að við áttum aldrei í hættu á að vinna neitt :P

En þetta var alveg ótrúlega gaman og ég vona að Faxi verði í formi á næsta ári til að keppa í fimmganginum þá, þá verður hann að verða 17 vetra, en hann er bara að verða betri með aldrinum :haha:

 

Sjáumst seinna!

Adios!


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 08:42:01 / hestafrík

Spenningur dauðans!!

Já mikið an**koti spennt er ég... ekki kvíðin... bara geggjað spennt :haha:

Þessi skóladagur verður bara stuttur, til hádegis og svo fer ég heim í klippingu og svo er það bara off too Ölfushöllin... þar verð ég nú að sýna Faxa svæðið og dæmið allt og svo er það bara úrtakan klukkan 6!!

Ég fór á hestbak í gær og Faxi var æðislegur 8) ég var með hlífar og það stoppuðu tveir strákar bílinn til að horfa á mig og Faxa svo ég held að við höfum ekki verið neitt slæm sko :P

Faxi var æði á skeiðinu... ég skeiðaði að húsinu heima og hann var svo góður, hann teygði sig og fór svo hratt yfir og var svo æðislegur :haha:

Ég hlakka geggjað til í kvöld...

Og ég læt fylgja með mynd af hesti á skeiði...

Sjáumst í kvöld með fréttir af úrtökunni!

Adios!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 11:46:19 / hestafrík

Góð helgi!

Já ansi var þetta æðisleg helgi... :haha:

Ég fór á bak alla daga helgarinnar en helgin byrjaði þegar ég fór úr skólanum snemma til að fara til Svanhildar og Magnúsar á Neðra-Seli... ég var að hugsa um að reyna að vera hjá þeim í sumar... ég hitti þau og mér leist bara ansi vel á þetta og þeim líka held ég... ég er auðvitað svo æðisleg að það er ekki hægt að neita því að hafa mig í vinnu :P Ég byrja þá bara þegar skólinn er búinn og verð þarna í sumar, eftir sumarið verð ég svo orðinn algjör snillingur... þau eru mikið með hross í frumtamningu þannig að ég verð snillingur í því og kannski ég frumtemji bara svolítið næsta vetur... 8)

Þegar ég kom heim þá var geggjaður vindur svo að ég ákvað að fara bara á Faxa, ekki Mána, hann er of tense í miklum vind...

Á Laugardaginn fór ég á heila FJÓRA hesta, þetta hefur bara ekki gerst í allan vetur... reyndar var Blesi ekki kominn á járn en ég fór bara aðeins út á tún með hann...

Ég fór líka á Mána og hann var afar góður... ég finn að hann er alltaf að verða betri og betri og þetta námskeið er bara gott fyrir hann, hann er orðinn mikið hlýðnari og svo er ég farin að láta hann kyssa ístöð þannig að hann er ekki eins stífur... Töltið er alveg að koma til og ég fór aðeins hraðar og hann var bara æði...

Og ég fór líka á Faxa, ákvað að prófa að nota stangir en fattaði að það var ekki að virka svo að ég reyni það ekki meira... þannig að hann var ekkert voða sérstakur...

Ég fór líka á Jarp, hann var alveg rosagóður en vinstri hendin var að verða smá þreytt eftir alla þessa reiðtúra svo að ég átti erfitt með hana... en Jarpur var ekkert að hoppa á tölti og var mjög yfirvegaður nema kannski á hröðu tölti en það var svolítið hræðilegt því hann varð mjög viljugur og ég átti erfitt með að stoppa því að vinstri hendin var á þessum tímapunkti alveg að gefast upp... ég komst þó heim heil á húfi... ;)

 

Svo fór ég á hestbak á sunnudaginn líka, strax eftir vinnu klukkan 4... (OKEY, ég fékk mér að borða smá fyrst) og fór á Faxa og Mána...

Faxi var bara mjög góður, ég var með venjulega mélið og setti á hann hlífar en kannski varð hann heldur til fjórtaktaður á skeiðinu en ég verð að láta pabba sjá mig á þriðjudaginn með og án hlífa til að sjá muninn...

Máni var algjört ÆÐI :haha: ég var að gera stoppæfinga og þessa með að láta hann gefa eftir og fara af stað á feti með hausinn í lóð... og svo þegar ég fór upp á tölt og hvatti hann en hélt aftur af honum þá gekk hann svona rosa vel undir sig að aftan :D mér fannst ég sitja á ská niður... hann alveg lyfti sér upp að framan og þetta var æðislegt!

 

En vá þetta er að verða pínku langt blogg... aðallega því ég bloggaði ekkert um helgina :$

En við sjáumst seinna

Adios!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 21:33:00 / hestafrík

Faxi skeiðgarpur!

Já Faxi er sko alveg að gera sig hjá mér... Hann skeiðar alveg eins og brjálæðingur með mig og er að bæta sig á hverjum degi :haha: Máni er í lagi og ekkert haltur en ég verð að passa mig að feta vel af stað og líka eftir reiðtúra, þá er hann alveg í lagi...

Það er úrtaka fyrir framhaldsskólamót næstu viku á miðvikudaginn og ég og Faxi eigum eftir að taka þetta í rassgatið skal ég nú segja ykkur!

Ég fór upp að Neðra Seli í dag og var svona að tala við Magnús og Svanhildi... mér líst rosavel á þetta og ég verð sennilega bara hjá þeim í sumar ;) Ég hlakka rosalega mikið til og ég á eftir að læra svo mikið af þeim og vera afar sjóuð eftir sumarið...

En já ég er að pæla að skrifa ekki meira í kvöld, ég er að horfa á X-Factor...

Adios!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 13:56:51 / hestafrík

Sorglegt ljóð sem lesið var í Zúuber um daginn

 Þetta er sönn saga...

Ljótur veruleiki Í vímu,

í skít og reyk

áttu þau lítinn ástarleik

en þau gleymdu góðum sið

og líf kviknaði í móðurkvið.

 

Allt sem hún átti í mánuði níu

var hass og pípa með skítuga síu.

Hún var marin og með bláa bauga

verðandi móðir með glóðurauga.

 

Loks fæddist lítill drengur

gullmoli var hann og lífsins fengur.

En lítill friður var með þessum sálum

því ekkert breyttist í hennar málum.

 

Hún leit ekki á lífið sem mömmuleik

hún þurfti meira - bæði vín og reyk.

Og þrátt fyrir ásakanir og skammir

voru vatnssoparnir ætíð rammir.

 

Og þegar hana fór að langa

gleymdi hún munninum svanga.

Hún læddist á hverju kvöldi út

og hunsaði alla ábyrgð á litla kút.

 

Það var köld og dimm vetrarnótt

hann var svangur og með hitasótt.

Einn í félagslegu steyptu skjóli

grét hann eða svaf í mömmubóli.

 

Svo kom hún heim í morgunsárið

og sá hvar glitraði á barnstárið,

sem staðnað hafði á kaldri kinn

hún faðmaði aldrei framar drenginn sinn.

 

Líf barnsins lagði hún að veði

fyrir skammvinna, ómerkilega gleði

fallegu augun mun hún aldrei aftur sjá

sem hún elskaði heitar en hægt er að tjá.

 

Alla daga eftir stóð hún stjörf og stíf

það hafði verið tekið frá henni allt líf.

Hún var full af sorginni dimmleitri,

því hún kæfði barnið sitt með eitri.

 

Tvö líf fórust þessa nótt

því afskaplega kyrrt og hljótt

en þó féllu þau með ólíkum hætti

féllu þau fyrir fíknarmætti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 14:53:18 / hestafrík

Sumarvinna óskast!

Já, nú er komið að því að ég auglýsi sjálfa mig...

Mig langar að vinna við hesta í sumar... fyrir það fólk sem ekki veit, þá er ég að verða 18 ára, bý á Hvolsvelli og er FSu á Selfossi og er að fara á hestabraut í haust..

Ég hef mikla reynslu af hestum, fór fyrst í hesthúsið þegar ég var bara nokkurra daga gömul og hef verið í hestum síðan þá...

Ég hef mjög mikla reynslu í þjálfun hesta og hef þjálfað mikið af þeim... við erum venjulega með um 8-9 hesta á húsi í senn og ég fer á þá alla... Ég hef minni reynslu af tamningum en langar að vinna undir handleiðslu við þær, mig langar að læra, ég er með rosalega fróðleiksfýsn...

Ég vildi helst vinna nálægt Hellu og Hvolsvelli því þá þarf ég ekki að vera í fæði og húsnæði, gæti bara keyrt á milli á hverjum degi... ég er laus alla virka daga til 18:00 og aðra hverja helgi, því ég mun hafa helgar- og kvöldvinnu á Hvolsvelli.

Með von um að einhver vilji mig

Sjáumst seinna!

Adios!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Könnun
Hefur þú komið til Þýskalands?